Tilkynning eftir fund sveitarfélaga í Rangárvallasýslu með HSU 20. febrúar 2025

Sameiginlegur fundur sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) um stöðu mála varðandi mönnun lækna á svæðinu var haldinn 20. febrúar síðastliðinn.

Fram kom að mönnun líti ágætlega út og að búið sé að tryggja 2–3 lækna út ágúst. Fyrirkomulagið er þannig að tveir norskir læknar skipta með sér einu stöðugildi, gert er ráð fyrir að þriðji norski læknirinn bætist við í sumar og að áfram verði íslenskir læknar í verktöku.

Ekki hefur enn tekist að ráða yfirlækni eða lækna í fastar stöður á starfssvæði HSU í Rangárvallasýslu en stöðurnar verða auglýstar áfram.

Fram kom að þjónustukönnun HSU kom vel út en fólk í Rangárþingi gaf lægri einkunn fyrir vissa þætti en var raunin á öðrum stöðum. Mikið álag hefur verið á öðru starfsfólki HSU en í könnuninni kom fram að fólk væri almennt ánægt með starfsfólkið á svæðinu.

Einnig kom fram að verið væri að ganga frá samningum um langtímaleigu tveggja nýrra íbúa á Hellu sem afhentar verða næstkomandi sumar.

Rætt var um ívilnanir til heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni og tekið fram að heilbrigðisráðherra væri meðvituð um tillögur sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu hvað þetta varðar.

Næsti samráðsfundur um málið verður haldinn mánudaginn 12. maí næstkomandi.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?