26. febrúar 2020
Fréttir
Íþróttamiðstöðin á Hellu og Laugalandi
Sumarstörf 2020
Starfsfólk vantar frá og með 1 júní 2020.
Um er að ræða vaktavinnu. Umsækjandi þarf að vera orðin 18 ára, standast hæfnispróf sbr. öryggisreglugerð fyrir sundstaði og eiga gott með að umgangast börn og unglinga, hafa góða þjónustulund og vera stundvís.
Umsóknarfrestur er til 23. mars.
Umsóknum skal skilað til forstöðumanns.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Svavarsson, forstöðumaður, í síma 864-5747.