03. apríl 2023
Fréttir
Vörðukórinn, sem skipaður er fólki úr Árnes- og Rangárvallasýslum mun halda sína árlegu vortónleika í Selfosskirkju miðvikudaginn 5. apríl klukkan 20:00.
Flutt verða lög úr ýmsum áttum, allt frá íslenskum og erlendum dægurlögum yfir í blús. Einnig verður frumflutningur á nýju lagi eftir Guðmund Óla Sigurgeirsson við texta eftir Jóa í Stapa. Með kórnum leika þau Arnhildur Valgarðsdóttir á píanó og Jón Rafnsson á kontrabassa. Stjórnandi kórsins er Eyrún Jónasdóttir.
Allur ágóði af þessum tónleikum rennur til styrktar fjölskyldu Guðjóns Björnssonar á Syðri- Hömrum í Ásahreppi. Miðaverð er 3500 krónur
Vonumst til að sjá sem allra flesta