Óskað er eftir tilboðum/verðkönnun í snjómokstur á tengi- og héraðsvegum í Rangárþingi ytra og Ásahreppi 2021-2024.
Verkkaupi er Rangárþing ytra. Umsjónaraðili verkkaupa verður Tómas Haukur Tómasson, forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs í Rangárþingi ytra.
Um er að ræða mokstur á tengi- og héraðsvegum ásamt heimreiðum á svæðinu frá Þjórsá að Eystri-Rangá, svæðunum er skipt landfræðilega við Ytri-Rangá og þjóðveg 1.
Svæðin eru eftirtalin:
- Þjórsá að Ytri-Rangá sunnan þjóðvegar.
- Þjórsá að Ytri-Rangá norðan þjóðvegar.
- Milli Ytri- og Eystri Rangár sunnan þjóðvegar.
- Milli Ytri- og Eystri Rangár norðan þjóðvegar.
Hægt er að bjóða í mokstur á einu svæði eða fleirum.
Útboðsgögn fást afhent frá og með fimmtudeginum 18. nóvember nk. á skrifstofu Rangárþings ytra. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir útboðsgögnum.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rangárþings ytra, Suðurlandsvegi 1, 850 Hellu, fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. nóvember. Þá verða tilboðin opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska kl. 14:15 sama dag.
F.h. verkkaupa:
Tómas Haukur Tómasson, Forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs Rangárþings ytra, tomas@ry.is, sími; 4887000.