Skóflustunga að nýjum gervigrasvelli

Samþykkt var í sveitarstjórn í desember 2023 að stækka íþrótta- og útivistarsvæðið á Hellu.

Nú er komið að því að taka fyrstu skóflustungu að nýjum gervigrasvelli, norðan við fótboltavöllinn á Hellu.

Skóflustungan verður tekin mánudaginn 29. júlí klukkan 10:00.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar eftir á, fyrir viðstadda.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?