Skipulagsmál til kynningar

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

 

Árbæjarhellir 2, Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14.10.2021 að auglýsa tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Árbæjarhelli 2, dags. 2016. Um er að ræða breytingar á ákvæðum um byggingarmagn og aðkomu þar sem gerð hefur verið breyting á landnotkun fyrir svæðið þar sem núverandi frístundasvæði er orðið að íbúðasvæði. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá landvegi.

Tillöguna má nálgast hér. 

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 19. janúar 2022.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Har. Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?