
Foreldrar 15 – 17 ára barna sem hafa rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi eru minntir á að skila þarf inn nýrri umsókn í upphafi skólaárs. Umsóknir er hægt að nálgast á heimasíðunni felagsmal.is. Með umsóknum þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting á námi barns. Athuga ber að sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára er samþykktur eina önn í senn og skila ber staðfestingu á áframhaldandi námi ungmennis við upphaf nýrrar annar. Íbúar í Mýrdalshreppi sækja um þann stuðning til sveitarfélags en umsóknar íbúa annarra sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu skulu berast til Félagsþjónustunnar.
Skila þarf umsóknum og fylgigögnum á skrifstofu félagsþjónustunnar að Suðurlandsvegi 1 – 3, 850 Hellu eða á netfangið annette@felagsmal.is
Nýjar umsóknir þurfa að berast til Félagsþjónustunnar eigi síðar en 15. þess mánaðar sem sótt er um.