Kaffisamsæti eldri borgara var haldið að Laugalandi í Holtum 11. janúar 2025. Þetta er í þriðja sinn sem sveitarfélagið býður eldri borgurum að hitta kjörna fulltrúa, þiggja kaffiveitingar og njóta tónlistaratriða saman. Á milli 60 og 70 gestir mættu og þökkum við þeim kærlega fyrir komuna og samveruna.
Hefð er orðin fyrir því að heiðra samborgara ársins á þessari samkomu og í ár var það Pálína S. Kristinsdóttir sem hlaut titilinn. Að auki hlaut Jón Ragnar Björnsson sérstaka viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu eldri borgara og sveitarfélagsins.
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd kallaði eftir tilnefningum íbúa síðastliðið haust og barst fjöldi tilnefninga. Pálína hlaut flestar tilnefningar að þessu sinni og er vel að heiðrinum komin.
Viðurkenning Pálínu er svohljóðandi:
Sveitarfélagið Rangárþing ytra veitir Pálínu S. Kristinsdóttur heiðursnafnbótina Samborgari ársins 2024 fyrir ómetanlega þjónustu við sveitunga sína.
Pálína hefur staðið vaktina á Landvegamótum um áratugaskeið og þjónustað sveitunga og ferðalanga með bros á vör, lengst af samhliða Bergi eiginmanni sínum heitnum. Landvegamót hafa í gegnum árin verið mikilvægur samkomustaður þar sem allir eru velkomnir. Pálína hefur ekki síst tekið börnunum í sveitarfélaginu opnum örmum og hafa mörg ungmenni stigið sín fyrstu skref á vinnumarkaði á Landvegamótum.
Hún býr yfir einstakri þjónustulund og eljusemi sem eftir er tekið og stendur enn vaktina.
Berglind Kristinsdóttir, formaður markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefndar, Pálína S. Kristinsdóttir og Eggert Valur Guðmundsson, oddviti.
Viðurkenning Jóns Ragnars er svohljóðandi:
Sveitarfélagið Rangárþing ytra veitir Jóni Ragnari Björnssyni sérstaka viðurkenningu fyrir störf sín í þágu eldri borgara.
Jón Ragnar var um árabil einstakur félagi og drifkraftur í Félagi eldri borgara í Rangárvallasýslu. Einnig fær hann viðurkenningu fyrir störf sín í þágu sveitarfélagsins sem meðlimur í markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd á yfirstandandi kjörtímabili.
Hann býr yfir einstakri framsýni, jákvæðni og eljusemi sem eftir er tekið.
Berglind Kristinsdóttir, formaður markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefndar, Jón Ragnar Björnsson og Eggert Valur Guðmundsson, oddviti.
Kvenfélagið Eining sá um glæsilegt kaffihlaðborð og einvalalið listafólks sá um tónlistarflutning. Fyrst á svið voru Gísella Hannesdóttir og Sigurður Matthías Sigurðarson sem fluttu ljúfa tóna við píanóundirspil Gísellu. Þá steig á svið ungur og efnilegur píanónemi við Tónlistarskóla Rangæinga, Elísabet Líf Sigvaldadóttir, sem flutti lagið Líttu sérhvert sólarlag í eigin útsetningu. Síðastar stigu á stokk Guðrún María Guðmundsdóttir, sem nemur söng við Tónlistarskóla Rangæinga, og kennarinn hennar, Aðalheiður Margrét Gunnarsdóttir. Þær tóku nokkur vel valin lög og enduðu á því að ná öllum salnum með í samsöng við góðar undirtektir. Þökkum við þeim öllum kærlega fyrir.