Ragna Magnúsdóttir ráðin aðstoðarskólastjóri

Stjórnendateymi Laugalandsskóla er nú fullskipað eftir ráðningu Rögnu Magnúsdóttur í stöðu aðstoðarskólastjóra.

Ragna er mörgum kunn enda hefur hún kennt við skólann í 17 ár.

Stjórnendateymi skólans skipa þá Jónas Bergmann skólastjóri, Ragna aðstoðarskólastjóri og Erla Berglind sem deildarstjóri stoðþjónustu.

Við óskum Rögnu til hamingju með ráðninguna og óskum henni velfarnaðar í starfi.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?