Öll hverfin á Hellu fá fjármagn til skreytinga

Markaðs-, menningar og jafnréttismálanefnd lagði nýlega fram beiðni um að sveitarfélagið myndi leggja til fjármuni til kaupa á sameiginlegum skreytingum hverfanna í tilefni 30 ára afmælis Töðugjalda.

Byggðarráð hefur samþykkt að styrkja hvert hverfi um allt að kr. 100.000 til kaupa á sameiginlegum skreytingum vegna afmælis hátíðarinnar.

Fyrirkomulagið er eftirfarandi:

  • Íbúar hvers hverfis koma sér saman um hvað skuli kaupa, leggja út fyrir vörunum og fá upphæðina svo endurgreidda frá sveitarfélaginu gegn framvísun reikninga eða kvittana þar sem fram kemur hvaða vara var keypt og upphæðin. Ekki er greitt fyrir vinnu, aðeins efniskaup og ekki má nýta fjármunina til annars en að kaupa skreytingar.
  • Íbúar hvers hverfis þurfa að útnefna einn fulltrúa til að halda utan um kvittanir. Best er að sá aðili leggi út fyrir skrautinu til að halda flækjustiginu í lágmarki en ef fleiri en einn úr hverju hverfi leggur út fyrir skrauti þarf endurgreiðslan samt að fara í gegn um einn fulltrúa sem útdeilir upphæðinni svo til annarra sem lögðu út.
  • Mikilvægt er að samtal milli íbúa hvers hverfis eigi sér stað – tilvalið er að hefja samtalið á hverfasíðunum á facebook og hóa saman í hóp áhugasamra aðila sem vilja taka þátt í þessu.

 

Ef spurningar vakna er hægt að hafa senda þær á osp@ry.is eða ry@ry.is

Við vonum að þetta mælist vel fyrir og hjálpi okkur öllum að gera þorpið sem hátíðlegast fyrir Töðugjöldin

Markaðs-, menningar og jafnréttismálanefnd

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?