ODDVITAR FUNDA MEÐ ÞINGFLOKKUM

Oddvitar sveitarstjórnanna fimm hafa átt fjarfundi með þingflokkum á Alþingi. Á fundunum hafa þau kynnt verkefnið Sveitarfélagið Suðurland og svarað spurningum þingmanna, en meginmarkmiðið var að kynna áherslur sveitarstjórnanna.

Tryggar samgöngur eru grunnur að því að vel takist til við mögulega sameiningu sveitarfélaganna fimm, og að íbúar sjái tækifæri í því að samþykkja tillögu um að sameinast um landstærsta sveitarfélag landsins.

Oddvitarnir lögðu áherslu á að ástand héraðs- og tengivega stendur uppbyggingu fyrir þrifum og skerðir lífsgæði íbúa. Bundið slitlag, breiðari vegaxlir og aukið viðhald er brýnt umferðaröryggismál. Nemendur á leið í skóla aka daglega um vegina og vegirnir þjóna lykilhlutverki í ferðaþjónustu. Stóraukið viðhald og markviss uppbygging vega eru meðal forgangsverkefna í stefnumótun svæðisins í samgöngumálum og var farið fram á að Sveitarfélagið Suðurland verði tilraunasveitarfélag í samstarfi við Vegagerð og samgönguráðuneytið við forgangsröðun og uppbyggingu héraðs- og tengivega. Lagt var til að tilraunaverkefnið fái til þess fjármagn sem samsvarar stóru samgönguverkefni, eða um 10 milljarða króna.

Auk þess var dregið fram að Þjóðvegur 1 er lífæð samfélagsins og einn helsti styrkleiki svæðisins, en ástand hans er líka einn helsti veikleikinn. Öryggismál eru í forgangi og brýnt að útrýma einbreiðum brúm og breikka veginn á þekktum slysaköflum. Breikkun þjóðvegarins og nýr láglendisvegur með jarðgöngum í gegnum Reynisfjall er brýnt hagsmunamál fyrir landsmenn alla, og íbúa og atvinnulíf á svæðinu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?