Oddastefna um Oddarannsóknina verður haldin í Hvolnum á Hvolsvelli, laugardaginn 20. maí 2023 frá kl. 13:30 til 16:30. Allir eru velkomnir.
Dagskrá:
Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins: Setning fundarins.
Helgi Þorláksson, fv. prófessor: Inngangsorð.
Kynning 1:
Oddur Pálsson, meistaranemi: Jón Loftsson í Odda. (20 mín)
Árni Freyr Magnússon sagnfræðingur: Búskapur og tekjur í Odda. (20 mín) Sigurlaugur Ingólfsson MA flytur erindið í fjarveru Árna Freys.
- Fyrirspurnir og umræður (10 mín)
Stutt hlé (5 mín)
Kynning 2:
Kristborg Þórsdóttir, fornleifafræðingur:Fornleifarannsóknir 2022/2023 (15 mín)
Egill Erlendsson, prófessor: Umhverfi og mannvist, könnun 2022/2023 (15 mín)
- Fyrirspurnir og umræður (10 mín)
Kaffihlé (30 mín)
Kynning 3:
Helgi Þorláksson, fv. prófessor: Kynning fyrirhugaðrar bókar um Oddarannsóknina. (10 mín)
Frjáls fyrirlestur:
Halldís Ármannsdóttir, MA: Grímur Hólmsteinsson (d. 1298) og menntir í Odda í tíð hans. (20 mín)
Friðrik Erlingsson og Ágúst Sigurðsson kynna tillögur Sigríðar Sigþórsdóttur að Sæmundarstofu, menningar og fræðasetri í Odda.
- Fyrirspurnir og umræður. (10 mín)
Almennar umræður um efni ráðstefnunnar og Oddarannsóknina.