26. október 2016
Fréttir
Fyrstu nemendatónleikar Tónlistarskóla Rangæinga verða haldnir nú í lok október.
Föstudaginn 28. október verða tónleikar í Safnaðarheimilinu á Hellu. Þar koma fram píanónemendur Laimu Jakaite og píanó-, selló- og fiðlunemendur Ülle Hahndorf.
Tónleikarnir hefjast kl. 17:00. Allir velkomnir.
Laugardaginn 29. október verða tónleikar í sal tónlistarskólans á Hvolsvelli. Þar koma fram píanó- og fiðlunemendur Guðrúnar Markúsdóttur og blokkflautunemendur Kristínar Jóhönnu Dudziak Glúmsdóttur.
Tónleikarnir hefjast kl. 10:00. Allir velkomnir
Sjá einnig á vef tónlistarskólans www.tonrang.is