09. apríl 2013
Fréttir
Logi Geirsson handboltahetja verður með fyrirlestur um sjálfstraust og sjálfsaga í íþróttahúsinu á Hellu fimmtudaginn 11. apríl og hefst hann kl. 19.00. Fyrirlesturinn er byggður upp á leiðum til að ná hámarks árangri jafnt í leik og starfi og er frábær skemmtun í bland við að veita áhorfandanum innblástur.
Aðgangur ókeypis.
ALLIR VELKOMNIR
Foreldrafélag Grunnskólans á Hellu, Ungmennafélagið Hekla og Ungmennafélagið Framtíðin.