Leikskólinn Heklukot auglýsir eftir starfsfólki og stuðningskennara

Auglýst er eftir kennara/stuðingskennara til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu.

Allar umsóknir skoðaðar.

 

Áherslur stuðningskennara og starsfólks eru að:

  • Sinna sérstaklega umönnun og kennslu barns/barna sem þarfnast stuðnings í samráði við deildarstjóra og aðstoðrarleikskólastjóra.
  • Vinna eftir einstaklingsnámskrá og settum markmiðum sem þarf að þjálfa með barninu.
  • Taka þátt í að meta framfarir.
  • Taka þátt á teymisfundum er varða barnið.
  • Starfa samkvæmt dagskipulagi leikskóla sem felur í sér matar- og hvíldartíma, útiveru, ýmsa leiki og skapandi verkefni fyrir börnin undir leiðsögn leikskólakennara eða annarra starfsmanna.

 

Menntun, hæfni og reynsla:
Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, Bs. í sálfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg.
Reynsla af sérkennslu.

Góð íslenskukunnátta.
Reynsla af starfi í leikskóla.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
Góð tölvukunnátta.

Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á heklukot@heklukot.is. Nánari upplýsingar veitir Inga Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 4887045, netfang: inga@heklukot.is og einnig má sjá upplýsingar um skólann á heimasíðu skólans: www.heklukot.is.

Umsóknarfrestur til 27. September2024

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?