Laus störf við Leikskólann á Laugalandi

Leikskólakennari/starfsmaður leikskóla

Við í Leikskólanum Laugalandi getum bætt við okkur einum starfsmanni í 100% stöðu og öðrum í afleysingar sem hægt væri að kalla út þegar á þarf að halda.

Leitað er eftir áhugasömum, metnaðarfullum starfsmönnum sem tala íslensku, hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum og eru tilbúnir til að vinna eftir sérstökum áherslum skólans.

Mikil og góð samvinna er við grunnskólann sem er undir sama þaki og leikskólinn.

Hlunnindi í starfi er gott starfsumhverfi og ís einu sinni í mánuði.

Umsóknir ásamt meðmælum skulu sendast á Leikskólann Laugalandi, 851 Hella fyrir 15. október eða á leikskolinn@laugaland.is

Upplýsingar veitir Sigrún Björk Benediktsdóttir, leikskólastjóri

Veffang: https://leikskolinnlaugaland.ry.is

Netfang: leikskolinn@laugaland.is

Sími 487 6633

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?