30. nóvember 2020
Fréttir

Laugaland
Við auglýsum eftir stuðningafulltrúa í 50% starf við Laugalandsskóla í Holtum frá og með 7. janúar 2021.
Hann mun aðstoða nemendur í leik og starfi og leiðbeina þeim í samskiptum þeirra við aðra nemendur og starfsfólk skólans.
Menntun og hæfniskröfur: Reynsla af að vinna með nemendum. Viðkomandi þarf að vera lipur í samskiptum og hafa ánægju af því að starfa bæði með börnum og fullorðnum.
Umsóknarfrestur er til 10. desember.
Umsóknum skal skila til skólastjóra eða senda rafrænt á netfangið sigurjon@laugaland.is.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 8964841.
Skólastjóri