16. október 2020
Fréttir
Laus er til umsóknar staða húsvarðar á Laugalandi í Rangárþingi ytra frá og með 1. desember.
Húsvörður
- annast húsvörslu alls húsnæðis á Laugalandi; grunnskóla, leikskóla og íþróttamannvirkja, þ.m.t. sundlaugar. Hann sinnir léttu viðhaldi og tryggir að allur búnaður virki sem skyldi og er ábyrgur fyrir ræstingu mannvirkja.
- er tengiliður stofnana við alla viðburði sem haldnir eru á Laugalandi.
- vinnur með börnum og unglingum bæði við gæslu nemenda í skóla og við íþróttaiðkanir.
Leitað er eftir laghentum einstaklingi sem er þægilegur í samstarfi og á auðvelt með að umgangast börn og unglinga á leik- og grunnskólaaldri.
Launakjör eru skv. samningum Foss.
Vinnutími húsvarðar er frá kl. 08:00 – 17:00 og frá 08:00 – 16:00 yfir sumarmánuðina.
Upplýsingar veitir Sigurjón Bjarnason skólastjóri í síma 4876540/8964841 og Þórhallur Svarvarsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 8645747
Umsóknum skal skila rafrænt á laugholt@laugaland.is fyrir 27. október n.k.