Leikskólinn Heklukot er staðsettur á Hellu í Rangárþingi ytra. Á Heklukoti opnar ný deild í mars. Heklukot verður þá fimm deilda leikskóli með um 90 nemendur.
Leitað er eftir fagmenntuðum, áhugasömum, glaðværum og metnaðarfullum starfsmönnum, körlum jafnt sem konum, sem hafa góða hæfni í mannlegum samskipum og eru tilbúnir til að vinna eftir sérstökum áherslum skólans. Fáist ekki leikskólakennarar til starfa er heimilt að ráða aðra til eins árs.
Unnið er eftir markmiðum Skóla á grænni grein sem fela í sér sambærilegar áherslur og í Aðalnámskrá leikskóla (2011). Einnig er unnið eftir markmiðum Heilsustefnunnar sem stuðlar að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.
Í Heklukoti er leikskólakennurum boðið uppá aukinn undirbúningstíma,
fá samtals 9 tíma m.v. 100% starf.
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars
Nánari upplýsingar veitir Rósa Hlín Óskarsdóttir, leikskólastjóri.
Netfang: heklukot@heklukot.is sími: 4887045