15. júní 2020
Fréttir
Tilkynning frá Veitum.
Vegna vinnu við dreifikerfið verður heitavatnslaust frá Útskálum og að Seltúni og Helluvaði mánudaginn 15. júní frá klukkan 10:00 til klukkan 16:00. Sjá nánar hér.
Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.
Starfsfólk Veitna biðst velvirðingar á óþægindum vegna þessa.