|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Frítt er í alla tímana og engin skráning, allir 15 ára og eldri eru velkomnir. Allir tímarnir fara fram í Íþróttamiðstöðinni á Hellu.
Allir finna eitthvað við sitt hæfi og er því engin afsökun fyrir fólk að sitja heima.
Komdu og prufaðu þessa skemmtilegu tíma sem í boði eru.
Tilboð verður á líkamsræktarkortum þessa daga og verða þau á 25.990 kr.
Í lok heilsudaganna verður svo haldið uppá 30 ára afmæli sundlaugarinnar með pompi og prakt laugardaginn 13. september.
Íbúum er boðið frítt í sund þennan dag, ís fyrir krakkana, kaffi og kaka.
Kristinn Ingi og félagar sjá svo um að spila tónlist á bakkanum.