Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra með skrifstofu á Hellu 9. september 2024

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, verður með skrifstofuna sína í fundarsalnum Laugum á skrifstofu Rangárþings ytra á 2. hæð Miðjunnar mánudaginn 9. september.

Hún býður upp á opinn viðtalstíma á milli kl.  10:30 og 11:30 þar sem öll áhugasöm eru velkomin í stutt, milliliðalaust spjall þar sem tækifæri gefst til að viðra hugmyndir og koma á framfæri athugasemdum sem tengjast málefnum á borði háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?