Grunnskólinn Hellu auglýsir eftir forfallakennara

Laus er 60% staða forfallakennara við Grunnskólann Hellu frá og með 14. janúar 2025.

Hæfnikröfur:

  • Kennararéttindi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Kennslureynsla æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

 

Í Grunnskólanum Hellu eru u.þ.b. 180 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2024-2025.

 

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans http://grhella.is

Vinsamlegast hafið samband við undirrituð til að fá frekari upplýsingar:

Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri á netfang kristins@grhella.is eða í síma 488 7021 / 663 6217,

Kristinn Ingi Guðnas. Austmar aðstoðarskólastjóri á netfang kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022/848 1467.

Umsóknarfrestur er til og með 7. janúar 2025.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Starfið hentar öllum kynjum.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?