Mikil og þörf umræða hefur farið fram um stöðu læknamála í sýslunni undanfarið. Illa hefur gengið að ráða lækna til fastra starfa hjá heilsugæslunni og hefur sú staða reglulega komið upp síðustu misseri að enginn læknir sé á vakt á stóru svæði.
Fulltrúar Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps hafa fundað með forstjóra og framkvæmdastjóra hjúkrunar og heilsuhæslu HSU til að fara yfir málin og leita skýringa og lausna á stöðunni.
Niðurstaða fundarins er sú að fyrir liggur að grunnlæknisþjónusta í sýslunni er tryggð í það minnsta næstu tvo mánuði. Sá tími verður nýttur til þess að auglýsa og ráða lækna í fastar stöður. Einnig kom fram að til skoðunar er hjá heilbrigðisráðuneytinu einhvers konar ívilnanir til laða að heilbrigðisstarfsfólk út á land og hvetur sveitarstjórn að því máli verði hraðað eins og kostur er. Sveitarfélögin í Rangárvallasýslu lýstu sig að auki tilbúin til að liðka til fyrir ráðningarferlinu eins og þeim er heimilt. Samþykkt var að auka upplýsingaflæði um stöðu mála og að haldinn verði stöðufundur í næsta mánuði.