
Í gærkvöldi fór fram virkilega góður íbúafundur um þróun skólasvæðis á Hellu sem um 50 manns tóku þátt í. Það var stýrihópur um þróun skólasvæðis á Hellu sem boðaði til fundarins. Fundurinn fór alfarið fram í gegnum ZOOM fjarfundabúnað og skiptist fundurinn í kynningu, hópastarf og niðurstöður. Afar innihaldsríkar umræður voru en rætt var um þróun skólasvæðisins út frá þremur birtingarmyndum þar sem lögð var áhersla á umferð og aðkomu, skipulag bygginga og útisvæðis og svo hvaða starfsemi skuli vera innan svæðisins. Kynningin sem farið var yfir á fundinum sem og niðurstöður hópavinnurnar verða gerðar aðgengilegar á næstu dögum á heimasíðu sveitarfélagsins.
Það er engin spurning að fleiri íbúafundir verða haldnir með þessu sniði í framtíðinni.
Enn er hægt að skila inn ábendingum til stýrihópsins og er allar upplýsingar að finna á slóðinni https://www.ry.is/is/ibuar/skolar/throun-skolasvaedis-a-hellu