Frábær árangur í Skólahreysti

Á dögunum fóru fram úrslit Skólahreysti 2024 þar sem Laugalandsskóli nældi í 3. sætið!

Athygli vakti að báðir skólar sveitarfélagsins voru mættir til leiks í 12 skóla úrslitunum en það verður að teljast stórvirki í samfélagi sem telur tæplega 2000 íbúa.

Ljóst er að krakkarnir hafa lagt mikið á sig með aðstoð frábærra þjálfara og óskum við þeim öllum innilega til hamingju með árangurinn.

Einstök stemning hefur myndast í kringum keppnina í bæði Hellu- og Laugalandsskóla og í samfélaginu öllu. Framtíðin er sannarlega hraust í Rangárþingi ytra.

Meðfylgjandi eru myndir af liðunum og frá úrslitakvöldinu þar sem öllu var til tjaldað og mikil gleði og stemning ríktu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?