24. maí 2024
Fréttir
Kjörfundur vegna forsetakosninga fer fram laugardaginn 1. júní 2024.
Kosið verður í Grunnskólanum á Hellu, að Útskálum 6–8.
Kjörfundur hefst klukkan 09:00 og lýkur klukkan 22:00.
Athygli kjósenda er vakin á skyldu til að sýna persónuskilríki ef kjörstjórn óskar þess.
Hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumönnum, meðal annars hjá sýslumanninum á Hvolsvelli að Austurvegi 6. Nánari upplýsingar um kosningu utan kjörfundar má nálgast hér.
Kjörstjórn Rangárþings ytra