Fjallahjólakeppnin Rangárþing Ultra var haldin í fyrsta skipti laugardaginn 22. júlí. Keppnin gekk gríðarlega vel og um 80 keppendur hjóluðu. Þrátt fyrir örlítinn mótvind á síðari hluta leiðarinnar þá skiluðu sér allir í mark og keppendur gríðarlega ánægðir með ægifagra náttúru svæðisins og skemmtilega leið.
Það eru sveitarfélögin Rangárþing ytra og Rangárþing eystra sem standa saman að keppninni en keppnin er sprottin uppúr hinni vinsælu götuhjólakeppni Tour de Hvolsvöllur.
Ræst var á Hellu kl. 12:00 og var það Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra sem ræsti, í stað þess að hjóla útá þjóðveg lá leiðin í gegnum þorpið á Hellu, upp hjá bóndabænum Helluvaði og þaðan upp Helluvaðssand. Farið var um Rangárvelli þar til komið var að Fiská og þaðan farið niður í Fljótshlíð og loks endað á Hvolsvelli. Þeir allra fyrstu voru ekki nema 1 klst og 45 mínútur að hjóla þessa 50 km löngu leið. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri Rangárþings eystra veitti svo verðlaun á Hvolsvelli að lokinni keppni.
Á næsta ári verður leiðinni snúið við. Byrjað verður á Hvolsvelli en endað á Hellu. Við búumst við ennþá stærri keppni og ekki seinna vænna en hefja undirbúning strax fyrir þá sem ætla að taka þátt!
Keppnisstjórn þakkar keppendum fyrir þátttökuna og öllum sem aðstoðuð við að gera þessa keppni að veruleika.
Heildarúrslit voru þessi:
Karlar
1 |
|
Ingvar Ómarsson |
|
|
01:46:44.2 |
||
2 |
|
Birkir Snær Ingvason |
|
|
01:46:45.4 |
|
|
3 |
|
Kristjan Jakobsson |
|
|
01:54:37.8 |
|
Konur
1 |
|
Anna Kristín Pétursdóttir |
|
|
02:19:19.9 |
||
2 |
|
Kristrún Lilja Júlíusdóttir |
|
|
02:22:54.7 |
|
|
3 |
|
Valborg Guðlaugsdóttir |
|
|
02:24:03.0 |
|
Nánari úrslit eru aðgengileg á www.timataka.net og allar upplýsingar á www.rangarthingultra.is