16. júní 2022
Fréttir
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða starfsmann í stoðþjónustu
Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir eftir starfsmanni í tímavinnu til að sinna stoðþjónustu staðsett á Hellu. Starfið felst í aðstoð við daglegt líf og félagslegan stuðning.
Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, eru ábyrgir og traustir, sýna frumkvæði í starfi og geta unnið sjálfstætt. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Starfið hentar jafnt körlum sem konum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Petrína Fr. Sigurðardóttir, Ráðgjafi í MFF í
síma 487-8125 eða á
petrina@felagsmal.is