Menningarsjóður - opið fyrir umsóknir

Rangárþing ytra auglýsir eftir umsóknum í seinni úthlutun menningarsjóðs sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til 31. júlí og úthlutað verður í ágúst 2024.

Til úthlutunar í seinni úthlutun ársins eru allt að 250.000 kr.

Umsækjendur geta verið lögráða einstaklingar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki sem koma að menningarviðburðum í Rangárþingi ytra. Verkefni sem styrkt eru verða að fara fram innan sveitarfélagsins. Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd metur hvaða verkefni eru styrkhæf.

Með umsókninni skal fylgja lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, fjárhagsáætlun og upplýsingum um viðkomandi umsóknaraðila.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur umsókna styrkja úr Menningarsjóði Rangárþings ytra og við hvetjum umsækjendur til að lesa reglurnar vel og vanda umsóknir.

Umsóknareyðublöð og reglur um úthlutun má nálgast hér fyrir neðan.

 

Sækja um

 

Fyrirspurnir vegna menningarsjóðs sendist á markaðs- og kynningafulltrúa, Ösp Viðarsdóttur, á netfangið osp@ry.is eða í s: 4887000.

Hægt að óska eftir ráðgjöf vegna styrkja hjá Stefáni byggðaþróunarfulltrúa Rangárvallasýslu á stefan@ry.is eða hjá Ösp markaðs- og kynningarfulltrúa á osp@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?