Brunavarnir Rangárvallasýslu kynna með stolti kaup á nýjum dælubíl. Á undanförnum árum hefur verkefnum Brunavarna fjölgað með tilkomu ferðamanna, umhverfisvitund og stækkandi sveitarfélögum.
Hlutverk Brunavarna er fjölbreytt og krefjandi en helstu verkefni eru:
- Eldvarnareftirlit.
- Slökkvistarf.
- Viðbrögð við mengunaróhöppum á landi.
- Björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum.
Árið 2023 var farið í mikla þarfagreiningu hjá Brunavörnum Rangárvallasýslu þar sem stóð til að kaupa nýjan dælubíl samkvæmt brunavarnaráætlun sem búið var að gera fyrir Rangárvallasýslu.
Á svæðinu er nauðsynlegt að vera með tvo dælubíla til að tryggja öryggi og bæta þjónustu.
Á vormánuðum 2024 var tæknilýsing bílsins tilbúin og var Ríkiskaupum falið að annast útboðið. Alls voru 15 aðilar sem sóttu útboðsgögnin og 2 sem gerðu tilboð að lokum sem voru Fastus ehf og Ólafur Gíslason & co hf.
Fastus var með lægsta tilboðið af þessum tveim og fengu þar af leiðandi verkið. Samstarfsaðilar Fastus í smíðum á slökkviliðsbílum eru Egenes Brannteknikk AS, í Noregi. Þetta er vel þekkt fyrirtæki hvað okkur varðar þar sem þeir smíðuðu einnig dælubílinn MAN sem staðsettur er á Hvolsvelli.
Sá bíll hefur þjónað okkur vel síðan 1999 og er enn verulega öflugur.
Egenes smíðar sína slökkvibíla úr búnaði frá Rosenbauer. Það er Austurrískt fyrirtæki sem hefur verið á markaði síðan 1866 og er því mjög framarlega á því sviði. Höfuðstöðvar Rosenbauer eru í Linz.
Dælubíllinn sem kemur eftir um 12 mánuði er Scania 4X4 með tvöföldu húsi.
Bíllinn verður útbúinn verulega öflugum slökkvibúnaði og allri nýjustu tækni til að tryggja starf slökkviliðsmanna og þeirra sem þurfa á þjónustu Brunavarna að halda. Sá búnaður sem er í bílnum er t.d.
- Snúrutengdur dróni
- CAFS froðukerfi
- RFC CUTTEX, sem er skurðartæki til að fara í genum veggi, stálþil og margt fleira.
- Dælugeta er 4200l/mín há- og lágþrýstingur
- Glussadrifið spil
- Glussarafstöð
- Ljósamastur með öflugum kösturum
2 monitorar verða á bílnum. Einn sem afkastar 3500 l/mín verður staðsettur á toppi bílsins og á honum verður einnig staðsett hitamyndavél.
Hinn verður staðsettur á stuðara og verður einnig tengdur froðukerfi bílsins og er með afkastagetu upp á 1500 l/mín
Aðstaða fyrir reykkafara verður aftur í mannskapshúsi. Sú breyting er okkur mjög mikilvæg til að spara tíma til að undirbúa reykköfun þar sem reykkafararnir geta gert sig klára á leiðinni á vettvang.
Við hjá Brunavörnum Rangárvallasýslu hlökkum mjög mikið til að sýna ykkur þennan dælubíl sem kemur til með að þjóna okkur öllum til næstu ára.
Myndin sem fylgir er af samskonar dælubíl sem er hjá slökkviliðinu í Mo i Rana en það sveitarfélag liggur á sömu breiddargráðu og nyrsti hluti Íslands.
Frá vinstri: Kristján Haraldsson, Stein A. Egenes, Bjørn M. Egenes, Leifur Bjarki Björnsson, Ágúst G. Valsson, Herdís Þórisdóttir, Sveinbjörn Már Birgisson.
MAN smíðarður af Egenes Brannteknikk AS, í Noregi árið 1999
Samskonar útlit og kemur til okkar.