Auglýsing um skipulagsmál í sveitarfélögunum Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt sameiginleg tillaga að deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun
Hvammsvirkjun, deiliskipulag virkjunar í Þjórsá.
Sveitastjórnir Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps leggja sameiginlega fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Hvammsvirkjun. Framkvæmdasvæði Hvammsvirkjunar er í báðum sveitarfélögunum. Stöðvarmannvirki verða í landi Hvamms í Rangárþingi ytra, en stíflumannvirki og lón munu taka yfir land í ofanverðri Landsveit og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Tillöguna má nálgast hér, hér og hér.
Ofantalin tillaga er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúum ofangreindra sveitarfélaga, og á heimasíðum sveitarfélaganna Rangárþings ytra, www.ry.isog Skeiða- og Gnúpverjahreppur www.skeidgnup.isJafnframt má nálgast frummatsskýrsluna hjá Skipulagsstofnun eða á vef þeirra www.skipulag.is
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 5. júlí 2017
Haraldur Birgir Haraldsson, Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra og
Pétur Ingi Haraldsson, Skipulagsfulltrúi Skeiða- og Gnúpverjahrepps