Lunansholt 1I, deiliskipulag.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14.3.2019 að auglýsa tillöguna. Deiliskipulagið tekur til byggingar frístundahúss, skemmu og gestahúsa. Aðkoma að Lunansholti 1I er af Árbæjarvegi.
Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.isFrestur til að skila inn athugasemdum er til 1. maí 2019.
Tillöguna má nálgast hér og hér.
------------------------------------
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing að eftirfarandi deiliskipulagi.
Marteinstunga Tankur, Rangárþingi ytra
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14.3.2019 að auglýsa lýsinguna. Veitur leigja um 1500 ferm. lóð af landeiganda í Marteinstungu, skv. langtímasamningi. Áformað er að byggja lítið dæluhús, hjá núverandi miðlunartanki hitaveitu til að auka þrýsting á hitaveitukerfi veitunnar. Einnig verður gert ráð fyrir bættri aðkomu að svæðinu.
Lýsingin er til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Skila má ábendingum við efni lýsingar til skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Kynningu lýsingar lýkur miðvikudaginn 3. apríl nk, klukkan 15.00
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
skipulagsfulltrúi.