
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitarstjórnar að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.
Hallstún L190888, breyting í aðalskipulagi, minnkun frístundasvæðis
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.2.2025 breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem núverandi frístundabyggð F27 minnkar um 4,4 ha en landbúnaðarsvæði stækkar til sama vegar.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Breytingin liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu, hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, Reykjavík, á Skipulagsgátt undir máli nr. 177/2025 og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Har. Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra