Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra (Sett inn 31.1.2025).
Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028.
Stekkatún. Breyting á landnotkun í aðalskipulagi
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 8.1.2025 að auglýsa tillögu að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 fyrir Stekkatún. Fyrirhugað er að stækka verslunar- og þjónustusvæði VÞ36 úr 6,7 ha í 12,6 ha. Gert verði ráð fyrir gistiskálum eða hvelfingum fyrir allt að 54 gesti í stað 45 áður í allt að 27 litlum gestahúsum / hvelfingum í stað 12 áður.
Skipulagsgögn má nálgast hér.
Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu, í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, www.skipulagsgatt.is og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 19. mars 2025.
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is
Har. Birgir Haraldsson
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra