Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum

 

Háteigur, Rangárþingi ytra, deiliskipulag

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 13.3.2024 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina Háteig í Þykkvabæ. Um er að ræða áform um uppbyggingu á ferðaþjónustu með stækkun íbúðarhúss og byggingu gistihúsa fyrir allt að 25 gesti. Aðkoma að svæðinu er frá Þykkvabæjarvegi um Ásveg.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Jafnframt er hægt að skoða skipulagsgögn og senda inn umsagnir í gegnum rafræna Skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 9. október 2024.

 

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?