31. janúar 2014
Fréttir
![Auglýsing um lausa lóð á Hellu sunnan Suðurlandsvegar](/static/news/auglysing_600x400_27.png)
Rangárþing ytra auglýsir lóð lausa til umsóknar á athafna- og þjónustusvæði sunnan Suðurlandsvegar á Hellu.
Lóðin er nr. 4 við Rangárbakka og er skv. gildandi deiliskipulagi ætluð til verslunar og þjónustu.
Umsóknareyðublöð, lóðarblöð, gjaldskrár, skipulagsskilmálar og aðrar upplýsingar liggja frammi á heimasíðu sveitarfélagsins, www.ry.is og á skrifstofu skipulagsfulltrúa Suðurlandsvegi 1-3.
Um úthlutun lóða gilda samþykktar verklagsreglur Rangárþings ytra.
Haraldur Birgir Haraldsson Skipulags- og byggingarfulltrúi