26. janúar 2018
Fréttir

Álftavatn á Rangárvallaafrétti. Mynd: Guðmundur Árnason
Álagningarseðlar hafa verið birtir rafrænt á Island.is.
Líkt og undanfarin ár munu álagningarseðlar ekki berast á pappír en eru þess í stað aðgengilegir rafrænt. Allt fyrir umhverfið!
Hvernig nálgast ég Álagningarseðilinn minn? (lesist til enda)
1. Ferð inná www.island.is
2. Skráir þig inn á "mínar síður"
3. Smellir á "Pósthólf - er bréf til þín?"
4. Þar er smellt á "Álagningarseðill fasteignagjalda 2017" sem er að finna þar í listanum.
Þar er hægt að hlaða álagningarseðli niður sem pdf eða prenta hann út.
Ef einhver vandamál koma upp er hægt að leita til skrifstofu Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða á netfangið ry@ry.is