26. janúar 2024
Fréttir
Álagningarseðlar fasteignagjalda hafa verið birtir rafrænt á ísland.is.
Líkt og undanfarin ár munu álagningarseðlar ekki berast á pappír en eru þess í stað aðgengilegir rafrænt. Allt fyrir umhverfið!
Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar og munu kröfur birtast rafrænt í heimabanka. Hægt er að nálgast greiðsluseðla rafrænt á Ísland.is
Hvernig nálgast ég álagningarseðilinn minn? (lesist til enda)
- Ferð inná www.island.is
- Skráir þig inn á „mínar síður“
- Smellir á „Pósthólf“
- Þar er smellt á „Álagningarseðill fasteignagjalda 20XX“ sem er að finna þar í listanum.
Þar er hægt að sækja álagningarseðil á pdf-sniði eða prenta hann út.
Ef einhver vandamál koma upp er hægt að leita til skrifstofu Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið ry@ry.is