25. nóvember 2015
Fréttir
Hin árlega Aðventuhátíð Kvenfélagsins Einingar í Holtum verður haldin sunnudaginn 29. nóvember n.k. fyrsta sunnudag í aðventu. Á aðventuhátíðinn verður m.a.handverksmarkaður, tónlistaratriði, kökubasar, kaffisala og tombóla til styrktar barnasjóði Einingar. Jólasveinar koma í heimsókn og kveikt verður á jólatré. Hátíðin stendur frá kl. 13 til 16. Allir velkomnir.