Aðili óskast í refa- og minkaveiði

Rangárþing ytra auglýsir eftir aðila til að sjá um refa- og minkaveiði fyrir sveitarfélagið í fyrrum Rangárvallahreppi til þriggja ára, með framlengingarheimild til tveggja ára.

Viðkomandi þarf að vera með gild, tilskilin leyfi og búa yfir mikilli þekkingu og reynslu af veiðum. Auk þess er afar góð staðarþekking nauðsynleg.

Umsækjendur skulu skila inn staðfestingu leyfa auk upplýsinga um fyrirkomulag veiða, verð og kostnaðaráætlun.

Umsóknum skal skila á netfangið sveitarstjori@ry.is eigi síðar en 19. mars 2025.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?