VISS vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða deildastjóra sem allra fyrst í 55% stöðu sem getur aukist með vorinu. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu sem vinnur eftir hugmyndafræði „þjónandi leiðsögn“ og „sjálfstætt líf. Um er að ræða nýja starfseiningu á Hvolsvelli sem hóf starfsemi í janúar 2021. Deildarstjórinn vinnur samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.
Helstu verkefnin eru :
- Daglegt utanumhald um rekstur og starfsemina
- Starfsmannahald
- Móta stefnu og markmið þjónustunnar í samráði við forstöðumann
- Verkefnaöflun og að verkefni sé við hæfi hvers og eins
- Utanumhald um skráningar og vistun skjala
Helstu markmið starfsins eru:
- Faglegt starf með fötluðu fólki
- Leiðbeina, styðja og hvetja
- Skapa öryggi og vellíðan á vinnustað
- Efling sjálfsákvörðunarréttar fatlaðs fólks
Hæfniskröfur:
- Menntun í þroskaþjálfa eða háskólapróf (BA/BS) á sviði uppeldis- eða félagsvísin
- Reynslu af stjórnun og starfsmannahaldi
- Leiðtoga og skipulagshæfileikar
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og góð þjónustulund
- Almenn tölvukunnátta æskileg
- Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga, þroskaþjálfafélags Íslands
- Umsóknarfrestur er til 22.03.2023
- Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Jónsdóttir forstöðuþroskaþjálfi ragnhildur@arborg.is eða í síma 480-6920 og 899-7254
- Umsóknum skal skilað á netfangið svava@felagsmal.is eða anton@hvolsvollur.is
Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað.
Öllum umsóknum verður svarað.