Umhverfisstofnun auglýsir landvarðanámskeið sem haldið verður í byrjun árs 2022. Þátttaka í námskeiðinu veitir réttindi til að starfa sem landvörður. Menntaðir landverðir ganga alla jafna fyrir við ráðningar í störf. Í Rangárþingi ytra og aðliggjandi sveitarfélögum starfa að jafnaði um 10 landverðir yfir sumartímann og 1-2 heilsárs landverðir. Umhverfisstofnun vill stuðla að því eins og kostur er að fá fólk úr héraði til starfa á verndarsvæðum sem þar eru til staðar
Námskeiðið er 110 klst. og eru megin umfjöllunarefnin eftirfarandi:
• Helstu störf landvarða
• Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála
• Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
• Gestir friðlýstra svæða
• Mannleg samskipti
• Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar
• Vinnustaðir landvarða
• Öryggisfræðsla
Mynd: Mannleg samskipti eru snar þáttur í störfum landvarða.
Námskeiðið hefst 3. febrúar og lýkur 27. febrúar. Kennt er um helgar milli kl. 9 og 14 og á fimmtudags- og föstudagskvöldum frá kl. 17.
Námskeiðið er fjarkennt á Teams þrjár helgar en ein staðlota verður í náminu og stendur hún frá miðvikudags eftirmiðdegi og fram á sunnudag. Staðlota er vettvangsferð haldin úti á landi og er skyldumæting í hana.
Gert er ráð fyrir töluverðri heimavinnu til viðbótar við mætingarskyldu á fyrirlestra og umræðufundi. Fyrirlestrar verða teknir upp en nemendur sem missa af umræðum vinna verkefni í stað umræðnanna.
Námskeiðsgjaldið 2022 er kr. 155.000,- og er allur kostnaður við vettvangsferðina innifalin í því verði.
Nánari upplýsingar
Á heimasíðu Umhverfisstofnunar eða hjá Kristínu Ósk Jónasdóttur, sérfræðingi í teymi náttúruverndarsvæða norður.
Mynd: Kort af friðlýstum svæðum á Íslandi.