Upplýsingar um sérstakan húsnæðisstuðning

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu heldur utan um afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings sem sveitarfélögum er skylt að greiða samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 76/2016. Sérstakur húsnæðisstuðningur kemur þá í stað sérstakra húsaleigubóta. Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir samþykki umsóknar og fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings má sjá í reglum um sérstakan húsnæðisstuðning inn á heimasíðu Félagsþjónustunnar, www.felagsmal.is.

Sérstakur húsnæðisstuðningur

vegna 15-17 ára námsmanna

Foreldrar 15-17 ára barna sem hafa rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi eru minntir á að skila þarf inn nýrri umsókn í upphafi skólaárs. Umsóknir er hægt að nálgast inn á heimasíðunni www.felagsmal.is. Með umsóknum þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting á námi barns. Athuga ber að sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára er samþykktur eina önn í senn og skila ber staðfestingu á áframhaldandi námi ungmennis við upphaf nýrrar annar.

Skila þarf umsóknum og fylgigögnum á skrifstofu félags- og skólaþjónustunnar að Suðurlandsvegi 1-3, 850 Hella eða á netfangið helgath@felgasmal.is

 

Nýjar umsóknir þurfa að berast til Félags- og skólaþjónustunnar eigi síðar en 15. þess mánaðar sem sótt er um. Greitt er frá þeim mánuði sem umsókn berst, ekki er greitt aftur í tímann.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?