04. ágúst 2021
Fréttir
Ákveðið hefur verið að aflýsa Töðugjöldum á Hellu sem fara áttu fram 13.-15. ágúst n.k. Það er gert í ljósi núgildandi sóttvarnarreglna sem gilda til og með 13. ágúst n.k. og fjölda virkra smita í samfélaginu. Undirbúningur hefur gengið virkilega vel og eiga allir sem ætluðu að koma að hátíðinni þakkir skildar fyrir, listamenn, sjálfboðaliðar, styrktaraðilar og aðrir. Þetta er annað árið í röð sem við þurfum að aflýsa Töðugjöldum vegna Covid en við stefnum á Töðugjöld að ári, 19. – 21. ágúst 2022. Áfram þurfum við að vera á verði gagnvart farsóttinni og ekki ráðlegt við þessar aðstæður að blása til mikilla hátíðahalda. En þetta mun auðvitað ganga yfir og við hefjum strax undirbúning Töðugjalda næsta árs!
Það er mikilvægt að hver og einn hugi að sínum sóttvörnum og virði þær reglur sem almannavarnir setja hverju sinni. Njótum áfram sumarsins en förum gætilega.