Töðugjöldin þrítug - vilt þú taka þátt?

Töðugjöld verða haldin að venju í ágúst og nú er verið að undirbúa og bóka atriði.

Hátíðin var fyrst haldin árið 1994 og er því þrítug í ár! Útlit er fyrir fjölbreytta og skemmtilega dagskrá sem sífellt bætist við.

Enn er pláss fyrir atriði og viðburði alla Töðugjaldavikuna. Okkur langar að auglýsa sérstaklega eftir áhugasömum aðilum úr heimabyggð sem langar að koma fram eða halda viðburð á tímabilinu 12.–18. ágúst nk.

Fjölbreytni er fagnað og hvort sem um er að ræða listir, menningu, handverk, íþróttir eða annað viljum við endilega heyra frá ykkur!

Áhugasöm geta haft samband við Ösp, markaðs- og kynningafulltrúa, á osp@ry.is eða í síma 8607631

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?