Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. auglýsir sumarhreinsun fyrir fasteignaeigendur í Rangárvallasýslu dagana 22. maí til 25. júní 2020
Á gámastæðunum verða gámar skv. eftirfarandi:
22.- 28. maí Grenndarstöðvar á Hellu og Hvolsvelli
29. maí – 4. júní Skógar og Heimaland
5. - 11. júní Bakkabæir, Vestur- og Austur Landeyjar
12. - 18. júní Rangárvellir (vegamót Gunnarsholtsvegar og Þingskálavegar) og grenndarstöðin við Meiri-Tungu
19. - 25. júní Þykkvibær og Fljótshlíð
- Gámar koma fyrir hádegi á fyrsta degi og eru teknir um hádegi á síðasta degi.
- Á hverjum stað verða gámar fyrir málma, timbur og grófan úrgang. Óheimilt er að setja úrgang utanvið gámana.
- Flokka skal rétt í gámana, annars verða þeir fjarlægðir og fyrirkomulagi breytt að ári.
- Í gámana má ekki setja heimilisúrgang, s.s. plast, pappír, lífrænan úrgang og annan óendurvinnanlegan heimilisúrgang.
- Í gámana má ekki setja rúllu/baggaplast, rafgeyma, spilliefni og annan rekstrarúrgang. Móttökustöðin á Strönd tekur við slíkum úrgangi.
- Að gefnu tilefni er bent á að fara með mjög stóra einstaka hluti á móttökustöðina á Strönd svo gámar yfirfyllist síður.
ATH. meðan að á sumarhreinsun stendur er ekki hægt að fá heimsenda gáma.
Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Sigurðsson, verkstjóri Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Sími: 487 5157, Tölvupóstur: strond@rang.is
Opið er á Strönd alla virka daga frá 13:30 – 18:00 og á laugardögum frá 10:00 – 16:00