06. nóvember 2014
Fréttir
Styrktartónleikar verða haldnir í Menningarsal Oddasóknar á Hellu fimmtudaginn 6. nóvember kl. 20:00.
Fram koma Karlakór Rangæinga, Kvennakórinn Ljósbrá, Harmonikufélag Rangæinga og Tríó GÓS.
Aðgangseyrir er 2.000, frítt fyrir 16 ára og yngri. Innifalið er kaffi og kleinur sem Kvenfélagið Unnur hefur veg og vanda af.
Allur ágóði rennur til reksturs og viðhalds á Menningarsalnum.