16. mars 2016
Fréttir

Slökkviliðsstjóri Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. auglýsa stöðu slökkviliðsstjóra Brunavarna Rangárvallasýslu bs. lausa til umsóknar.
Um er að ræða 30% stöðu slökkviliðsstjóra sem tekur að sér bakvaktir ásamt varðstjórum og öðrum slökkviliðsmönnum sem til þess eru valdir.
Launakjör samkvæmt kjarasamningum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl 2016. Umsóknum, ásamt upplýsingum um reynslu og menntun, skal skilað rafrænt á póstfangið agust@hvolsvollur.is
Nánari upplýsingar veita Ágúst Ingi Ólafsson sími: 488-4200 og Ágúst Sigurðsson sími: 488-7000.
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.