27. apríl 2020
Fréttir
![Skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga – umsóknir](/static/news/lg/1587977686_logo-f.-heimasidu.jpg)
Umsækjendur um stöðu skólastjóra Tónlistarskóla Rangæinga bs. voru 8 talsins en umsóknarfrestur rann út um miðjan apríl. Verið er að vinna úr umsóknum og umsækjendur hafa verið boðaðir í viðtöl í þessari viku.
Ingibjörg H. Einarsdóttir
Ingibjörg Erlingsdóttir
Íris Erlingsdóttir
Ólafur Rúnarsson
Sandra Rún Jónsdóttir
Sigríður K. Viðarsdóttir
Vigdís Klara Aradóttir
Zbigniew Zuchowicz
Reiknað er með að niðurstaða liggi fyrir í maí og að nýr skólastjóri taki til starfa í upphafi nýs skólaárs.